132. löggjafarþing — 43. fundur
 17. janúar 2006.
Framhaldsfundir Alþingis.

[13:33]
forsætisráðherra (Halldór Ásgrímsson) (F):

Forseti Íslands hefur gefið út svohljóðandi bréf:

„Forseti Íslands gjörir kunnugt:

Ég hefi ákveðið, samkvæmt tillögu forsætisráðherra, að Alþingi skuli koma saman til framhaldsfunda þriðjudaginn 17. janúar 2006 kl. 13.30.

Gjört í Reykjavík, 10. janúar 2006.

 

Ólafur Ragnar Grímsson.

-------------------------

Halldór Ásgrímsson.

 

Forsetabréf um að Alþingi skuli koma saman til framhaldsfunda.“

 

Fundir Alþingis hefjast því nú á ný. Hæstv. forseta, hv. alþingismönnum svo og starfsmönnum Alþingis óska ég gleðilegs árs, þakka hið liðna, býð menn velkomna til þingstarfa og læt í ljós þá ósk og von að störf okkar megi verða landi og lýð til blessunar.



[13:34]
Forseti (Sólveig Pétursdóttir):

Ég þakka hæstv. forsætisráðherra fyrir góðar óskir í garð okkar alþingismanna og starfsmanna Alþingis. Ég óska alþingismönnum og starfsmönnum Alþingis gleðilegs árs. Jafnframt sendi ég landsmönnum öllum mínar bestu nýársóskir.