132. löggjafarþing — 104. fundur
 19. apríl 2006.
kveðjur.

[12:02]
Forseti (Sólveig Pétursdóttir):

Ég býð hv. alþingismenn velkomna til þingstarfa á ný eftir páskahlé og vona að þeir hafi notið hvíldar yfir hátíðisdagana með fjölskyldum sínum. Sérstaklega býð ég velkominn til starfa hv. 5. þm. Norðaust., Steingrím J. Sigfússon, sem tekur nú sæti á ný á Alþingi og vona að hann hafi náð fullum starfskröftum að nýju.