132. löggjafarþing — 121. fundur
 3. júní 2006.
olíugjald og kílómetragjald o.fl., 2. umræða.
stjfrv., 794. mál (framlenging á lækkun olíugjalds). — Þskj. 1213, nál. 1333, brtt. 1250 og 1270.

[01:14]
Frsm. efh.- og viðskn. (Pétur H. Blöndal) (S):

Frú forseti. Ég mæli fyrir nefndaráliti um frumvarp til laga um breyting á lögum nr. 87/2004, um olíugjald og kílómetragjald o.fl., með síðari breytingum, frá hv. efnahags- og viðskiptanefnd. Nefndarálitið er að finna á þskj. 1333 og hefur að geyma upplýsingar um gesti sem sóttu nefndina heim sem og umsagnir sem nefndin fékk sendar.

Með frumvarpinu er lagt til að tímabundin lækkun olíugjalds verði framlengd um hálft ár til viðbótar við það sem samþykkt var með lögum nr. 87/2004 og 126/2005, eða fram til 31. desember 2006 þar sem heimsmarkaðsverð á dísilolíu er enn þá óvenju hátt miðað við bensín. Sömu tillögu er að finna í frumvarpinu varðandi sérstaka kílómetragjaldið til samræmis við olíugjaldið. Í frumvarpinu er einnig lagt til að björgunarsveitum verði heimilt að nota litaða gjaldfrjálsa olíu á ökutæki sín en í staðinn greiði þær sérstakt kílómetragjald af akstri þeirra.

Nefndin leggur til að frumvarpið verði samþykkt óbreytt.

Hv. þingmenn Jóhanna Sigurðardóttir, Ögmundur Jónasson og Lúðvík Bergvinsson skrifa undir álit þetta með fyrirvara.

Hv. þm. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir var fjarverandi við afgreiðslu málsins.

Undir nefndarálitið rita hv. þingmenn Pétur H. Blöndal, Jónína Bjartmarz, Guðjón Ólafur Jónsson, Birgir Ármannsson, Jóhanna Sigurðardóttir, með fyrirvara, Ásta Möller, Ögmundur Jónasson, með fyrirvara, og Lúðvík Bergvinsson með fyrirvara.



[01:15]
Kristján L. Möller (Sf) (andsvar):

Frú forseti. Ég hef aðeins eina spurningu til hv. þm. Péturs Blöndals, formanns efnahags- og viðskiptanefndar: Hvernig stendur á því að ekki skuli gengið frá málinu varðandi björgunarsveitirnar eins og talað hefur verið um? Björgunarsveitirnar hafa sótt eftir því að kílómetragjaldið yrði líka fellt niður en því fylgir töluverður kostnaður.

Virðulegur forseti. Ég er ekki alveg viss um að hv. þingmaður taki eftir andsvari mínu og spurningu til nefndarinnar, um hvort þetta hafi ekki komið til tals. Hvers vegna er ekki gengið skrefinu lengra með björgunarsveitirnar, að leggja einnig niður þetta kílómetragjald sem mér skilst að geti verið 5–6 millj. kr.? En í staðinn er björgunarsveitunum gert skylt að setja tæki í bíla sína sem kosta um 70 þús. kr. á hvern bíl. Það eru 200 bílar eða um 14 millj. kr. Hvers vegna var ekki skrefið stigið til fulls?



[01:16]
Frsm. efh.- og viðskn. (Pétur H. Blöndal) (S) (andsvar):

Frú forseti. Samkvæmt beiðni björgunarsveitanna var lagt til að þær færu yfir á gjaldfrjálsa olíu með kílómetramælum. Það hefur í för með sér kaup á slíkum mælum. Hins vegar veit ég til þess að einhverjir þingmenn hafi hugleitt breytingar á þessu við 3. umr.



[01:17]
Kristján L. Möller (Sf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Í umsögn slysavarnafélaganna virðist mér þessu mótmælt. Þar er talað um mikinn kostnað sem því fylgir fyrir björgunarsveitirnar að setja ökumæla í hvert ökutæki. Einnig fylgir því kostnaður og vinna fyrir sveitirnar og opinbera aðila að láta lesa af þessum mælum. Það er sem sagt lagt til að taka upp kerfi sem m.a. hv. þingmaður tók þátt í að leggja af fyrir nokkrum missirum síðan, þ.e. þungaskattskerfið. En þarna er því komið á upp á nýtt.

Ég get sagt það, virðulegur forseti, að ég er sammála því og hyggst í ræðu minni á eftir boða breytingartillögu sem þarf til að björgunarsveitirnar fái þetta frítt, þ.e. fari á lituðu olíuna og greiði ekki kílómetragjald, þann þungaskatt sem þarna er lagður til.



[01:18]
Frsm. efh.- og viðskn. (Pétur H. Blöndal) (S) (andsvar):

Frú forseti. Ég get lítið annað en endurtekið það sem ég sagði áðan. Þetta var gert að ósk björgunarsveitanna. Ég er hissa á að fram hafi komið víðtækari óskir um annað. Hins vegar veit ég ekki til að nokkurt ökutæki fari um þjóðvegi landsins án þess að greiða skatt í einhverju formi.



[01:19]
Jón Bjarnason (Vg):

Frú forseti. Hérna er til 2. umr. frumvarp til laga um breytingu á lögum um olíugjald og kílómetragjald sem m.a. hefur að markmiði, eins og stendur í 4. gr. frumvarpsins, að framlengja ákvæði til bráðabirgða í lögunum, um að fjárhæð olíugjalds skuli 41 kr. á hvern lítra af olíu frá gildistöku laga þessara til 31. desember 2006. 4. gr. er svohljóðandi:

„Ákvæði til bráðabirgða I í lögunum, sbr. lög nr. 126/2005, orðast svo: Þrátt fyrir ákvæði 3. mgr. 1. gr. laga þessara skal fjárhæð olíugjalds vera 41 kr. á hvern lítra af olíu frá gildistöku laga þessara til 31. desember 2006.“

Þessu gjaldi mun því viðhaldið til að jafna verð á milli olíu og bensíns. Af því tilefni flytjum við þingmenn Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs breytingartillögu við frumvarpið til að árétta að með gjaldheimtu sem þessari er hægt að stýra orkunotkun inn á vistvænni brautir og einnig til orkusparnaðar, ekki síst þegar um er að ræða orku sem ekki er sjálfbær. Hún er ekki ótakmörkuð eins og við vitum, olía og bensín eru ekki ótakmörkuð auðlind og þess vegna ber okkur að haga málum svo. Þess vegna flytjum við þingmenn Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs, hv. þingmenn Atli Gíslason, Ögmundur Jónasson, Þuríður Backman, Jón Bjarnason og Steingrímur J. Sigfússon, breytingartillögu sem lögð var fram fyrr á þinginu. Hún hljóðar svo:

„Við bætist ný grein sem verði 4. gr. og orðist svo:

2. mgr. 23. gr. laganna orðast svo:

Innheimtar tekjur af olíugjaldi, kílómetragjaldi og sérstöku kílómetragjaldi samkvæmt lögum þessum renna til Vegagerðarinnar að frádregnum 0,5% sem renna í ríkissjóð til að standa straum af kostnaði við framkvæmd laga þessara og 4,5% sem renna til að efla almenningssamgöngur og til að auka hlut vistvænna orkugjafa í samgöngum.“

Miðað við innheimtu þessa gjalds gætu þessi 4,5% reynst í kringum 200 millj. kr. sem rynnu til viðbótar til að efla almenningssamgöngur og auka hlut vistvænna orkugjafa í samgöngum. Við teljum að það eigi, að því marki sem mögulegt er, að beina skattheimtunni á þessum orkugjöfum, óendurnýjanlegum orkugjöfum, til að stýra notkuninni á vistvænni brautir og til orkusparandi aðgerða. Þess vegna er þessi tillaga flutt.



[01:23]
Kristján L. Möller (Sf):

Frú forseti. Enn einu sinni kemur fyrir þingið tillaga frá hæstv. fjármálaráðherra um að framlengja tímabundið 4 kr. afslátt á olíugjaldi. Enn einu sinni erum við að vinna slíka tillögu á síðasta degi þingsins þar sem búið er að gera ákveðið samkomulag og má ekki ræða hlutina mikið. Þetta er mjög bagalegt vegna þess að full þörf væri á að ræða málið enn einu sinni. Nú er ýmislegt að koma í ljós sem varað var við. Það er t.d. að koma í ljós að áætlaðar sölutölur á olíu eru ekki 80 millj. lítra heldur 120 millj. lítra. Áætlaðar tekjur ríkissjóðs aukast því um 1,5 milljarða kr. vegna aukinnar sölu.

Þetta er enn eitt atriðið sem bætist við hina miklu skattheimtu. Við sjáum það á bensínstöðvum í dag hve lítill munur er á verði 95 oktana bensíns og olíu, þ.e. 4–5 kr. Upptaka olíugjalds átti að leiða til þess að olían yrði ódýrari og hagkvæmara væri að kaupa sér netta bíla með dísilvél og spara þannig. En eins og við vitum eru dísilbílar dýrari í innkaupum þannig að sparnaðurinn er ekki svo ýkja mikill.

Eins og ég hef áður gert lýsi ég yfir stuðningi við þessa lækkun en vildi þó hafa hana meiri. Ég vil því gera grein breytingartillögu sem hv. þingmenn Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, Jóhanna Sigurðardóttir og Lúðvík Bergvinsson flytja, en fyrsti liður hennar er svohljóðandi, með leyfi forseta:

„4. gr. orðist svo:

Ákvæði til bráðabirgða I í lögunum, sbr. lög nr. 70/2005 og 126/2005, orðast svo:

Þrátt fyrir ákvæði 3. mgr. 1. gr. laga þessara skal fjárhæð olíugjalds vera 35 kr. á hvern lítra af olíu frá gildistöku laga þessara til 31. desember 2006.“

Hið sama gildir um vörugjald af bensíni, gert ráð fyrir að það lækki líka niður í 3,28 kr. Þetta er í framhaldi af þeirri tillögu sem hv. þm. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir flutti í upphafi maímánaðar. Þar var boðið upp á fulla sátt til að keyra í gegn slíka lækkun, sem hefði þá þegar mikil áhrif á vísitölu neysluverðs og hefði ekki veitt af. Það boð var ekki þegið og þess vegna hafa hækkunaráhrifin farið út í vísitöluna.

Virðulegi forseti. Ég vísa til þeirrar greinargerðar sem fylgir með breytingartillögu þessara þingmanna á þskj. 1270.

Ég hef áður gert að umtalsefni aukningu á olíusölu sem gefur ríkissjóði töluvert meiri tekjur. Ég vil í lokin, vegna þess að ég benti á aðra leið í byrjun, fagna því sem þarna kemur fram, að veita björgunarsveitum afslátt og leyfa þeim að fara yfir á litaða olíu. Ég gagnrýndi þá þegar að þessir bílar ættu að fara á kílómetragjald, inn í þungaskattskerfi sem við töldum okkur hafa lagt niður en sem kemur sífellt meira inn bakdyramegin. Þungaskattskerfið er á öllum bílum sem eru 10 tonn og þyngri, öllum vöruflutningabílum og tengivögnum. En þarna á að bæta því við.

Virðulegi forseti. Það hefur komið fram að meðalkostnaður við að setja tæki í bílana til að mæla ekna kílómetra til greiðslu þungaskatts er um 70 þús. kr. á hvern bíl. Talið er að hjá björgunarsveitunum falli undir þetta um 200 bílar alls. Þar er um 14 millj. kr. að ræða. Mér finnst vitleysa að fara þessa leið og sagði það þegar við 1. umr. Ég benti hæstv. fjármálaráðherra á að ég teldi að skoða ætti hvort þetta mætti gera með svokölluðum GPS-kubbum sem íslenskt fyrirtæki er að þróa og komið langt með að framleiða. Væru slíkir kubbar settir í þessa bíla, séu þeir ekki þegar komið í marga þeirra, mundi fleira vinnast, þ.e. að hafa fullkomna staðsetningu en það mætti rukka eftir því.

Nú heyri ég að menn ætla að reyna að breyta þessu. Ég hafði sjálfur boðað breytingartillögu við þetta frumvarp, þ.e. að 2. gr. frumvarpsins falli út. Þeirri tillögu verður væntanlega dreift í fyrramálið. Hún er tilbúin að mér skilst úti á nefndasviði. Hún er sáraeinföld í raun og veru, þ.e. að 2. greinin falli út. Þar með segjum við bara að björgunarsveitarbílar skuli keyra á litaðri olíu og ekki greiða aðra skatta fyrir því. Það væri framlag samfélagsins til björgunarsveita í landinu, aukið framlag. Ég held að það ætti ekki að auka kostnað þeirra.

Virðulegi forseti. Ég sagði áðan að það væri slæmt að þurfa alltaf að ræða þetta mál í skjóli nætur, á síðasta degi þar sem menn mega ekki fara djúpt í þessa umræðu og benda á þessi atriði. Ég ítreka það sem ég sagði áðan, að ég styð þessa tímabundnu lækkun. En ég hvet til þess að tillaga Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur og fleiri hv. þingmanna verði samþykkt, um tímabundna lækkun sem mun líka hafa jákvæð áhrif á vísitölu neysluverðs. Svo hvet ég til að fundin verði almennileg lausn á þessu gagnvart björgunarsveitunum. Ég tel að besta lausnin sé að fella 2. gr. burt og hætta þeim áformum að láta setja mæla í bílana, fara að rukka þá um þungaskatt.