135. löggjafarþing — 123. fundur
 12. september 2008.
þingfrestun.

[12:05]
Forseti (Ásta R. Jóhannesdóttir):

Hv. alþingismenn. Þá er komið að lokum þessara septemberfunda Alþingis. Á þeim tveimur vikum sem fundirnir hafa staðið hafa níu frumvörp verið afgreidd sem lög. Sex þeirra voru frumvörp sem lögð höfðu verið fram á vetrar- eða vorþingi en samkomulag var um að skoða þau nánar og afgreiða nú í september. Fjögur ný frumvörp voru lögð fram á þessum tveimur vikum og þar af urðu þrjú þeirra að lögum.

Að mínu áliti hefur þetta nýmæli sem septemberfundirnir eru tekist vel til og bætir enn frekar vinnubrögðin hér á Alþingi. Septemberfundirnir urðu líka hvati fyrir þingnefndir til að koma saman í sumar og það oftar en áður og ég vil geta þess að alls voru haldnir 17 nefndarfundir í júlí og ágúst, m.a. til undirbúnings þingstörfum hér í september auk tíðra nefndafunda nú á meðan þingfundir stóðu. Þá vil ég nefna að septemberfundir hafa skapað gott tækifæri til almennrar pólitískrar umræðu hér í þinginu eftir sumarhlé þingsins. Á næstu dögum má búast við fundum nefnda og vettvangsferðum þeirra og jafnframt gefst þingmönnum tækifæri til að huga að undirbúningi fyrir næsta löggjafarþing sem verður sett miðvikudaginn 1. október nk.

Ég lýk máli mínu með því að þakka fyrir hönd okkar forsetanna hv. alþingismönnum fyrir mjög gott samstarf, skrifstofustjóra og starfsfólki Alþingis þakka ég alla aðstoð.



[12:07]
forsætisráðherra (Geir H. Haarde) (S):

„Forseti Íslands gjörir kunnugt:

Að ég, að tilskildu samþykki Alþingis, veiti forsætisráðherra umboð til þess að fresta fundum Alþingis, 135. löggjafarþings, frá 12. september eða síðar, ef nauðsyn krefur, til 1. október 2008.

Gjört í Reykjavík, 9. september 2008.

Ólafur Ragnar Grímsson.

_____________

Geir H. Haarde.

Forsetabréf um frestun á fundum Alþingis.“

Samkvæmt þessu umboði og með vísan til samþykkis Alþingis frá því fyrr í dag lýsi ég hér með yfir því að fundum Alþingis, 135. löggjafarþings, er frestað.

Ég óska hv. alþingismönnum og starfsmönnum þingsins svo og landsmönnum öllum allra heilla.