tilkynning um nýjan þingmann.
Við þingmennskuafsal Guðna Ágústssonar sl. mánudag tók Eygló Harðardóttir, framkvæmdastjóri í Vestmannaeyjum, sæti hans á Alþingi og verður 8. þm. Suðurkjördæmis. Venju samkvæmt breytist kosningatala þess þingmanns Framsóknarflokksins sem er á listanum, þ.e. Helga Sigrún Harðardóttir verður 3. þm. Suðurk.
Kjörbréf Eyglóar Harðardóttur hefur þegar verið rannsakað og samþykkt. Hún hefur ekki áður tekið sæti á þingi á þessu kjörtímabili og er boðin velkomin til starfa sem alþingismaður.