136. löggjafarþing — 67. fundur
 22. desember 2008.
Ríkisútvarpið ohf., frh. 3. umræðu.
frv. menntmn., 262. mál (fjárhæð sérstaks gjalds). — Þskj. 424.

ATKVÆÐAGREIÐSLA

[18:20]

[18:19]
Kolbrún Halldórsdóttir (Vg) (um atkvæðagreiðslu):

Frú forseti. Hér er komið til lokaatkvæðagreiðslu frumvarp til laga sem flutt er af menntamálanefnd og varðar Ríkisútvarpið. Ég vil lýsa því yfir og ítreka það sem ég sagði í 2. umr. um þetta mál að ég og við þingmenn Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs sem sitjum í menntamálanefnd erum sátt við þessar málalyktir, þ.e. að áfram verði unnið í málinu um Ríkisútvarpið í hv. menntamálanefnd. Þar verður áfram tekist á um þau mál sem það varðar. Útvarpsgjaldið sem hér er fjallað um verður afgreitt með þeim hætti að um tímabundna ráðstöfun er að ræða. Við lítum svo á að með því að afgreiða málið á þennan hátt lýsum við í sjálfu sér hvorki yfir stuðningi við hið breytta rekstrarform Ríkisútvarpsins né við það fyrirkomulag gjaldheimtu sem komið var á með þeim lögum sem samþykkt voru fyrir tveimur árum síðan. En þetta (Forseti hringir.) fyrirkomulag á afgreiðslu málsins er okkur að skapi og við þingmenn Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs í menntamálanefnd munum því styðja þennan framgangsmáta.



Frv.  samþ. með 45:3 atkv. og sögðu

  já:  ArnbS,  ÁÓÁ,  ÁI,  ÁPÁ,  ÁJ,  ÁMM,  ÁÞS,  ÁRJ,  ÁMöl,  BÁ,  BJJ,  BjarnB,  BjörgvS,  BjörkG,  BBj,  EKG,  EBS,  EyH,  GHH,  GuðbH,  GSB,  GÞÞ,  HHj,  HerdÞ,  HöskÞ,  IllG,  ISG,  JóhS,  JónG,  KJak,  KÓ,  KolH,  KHG,  KÞJ,  KLM,  MS,  ÓN,  PHB,  RR,  SKK,  SF,  SVÓ,  StB,  ÞKG,  ÞSveinb.
nei:  GMJ,  GAK,  JM.
4 þm. (AtlG,  JBjarn,  SJS,  ÖJ) greiddu ekki atkv.
10 þm. (ÁKÓ,  EMS,  GSv,  HSH,  KVM,  KaJúl,  LB,  VS,  ÞBack,  ÖS) fjarstaddir.