138. löggjafarþing — 18. fundur
 3. nóvember 2009.
tilkynning um dagskrá.

[13:30]
Forseti (Ragnheiður Ríkharðsdóttir):

Um klukkan tvö í dag, að loknum dagskrárliðnum Störf þingsins, fer fram umræða utan dagskrár um forgangsröðun í heilbrigðisþjónustunni. Málshefjandi er hv. þm. Siv Friðleifsdóttir og hæstv. heilbrigðisráðherra, Álfheiður Ingadóttir, verður til andsvara. Umræðan fer fram samkvæmt 2. mgr. 50. gr. þingskapa og stendur í hálfa klukkustund.