138. löggjafarþing — 65. fundur
 30. desember 2009.
frestun á fundum Alþingis, ein umræða.
stjtill., 344. mál. — Þskj. 615.

[19:49]
forsætisráðherra (Jóhanna Sigurðardóttir) (Sf):

Virðulegi forseti. Ég mæli fyrir tillögu til þingsályktunar um samþykki til frestunar á fundum Alþingis samkvæmt 1. mgr. 23. gr. stjórnarskrárinnar.

Tillagan er svohljóðandi:

„Alþingi ályktar að veita samþykki til þess að fundum þingsins verði frestað frá 30. desember 2009 eða síðar, ef nauðsyn krefur, til 26. janúar 2010.“

Tillagan skýrir sig sjálf.