138. löggjafarþing — 87. fundur
 8. mars 2010.
tilhögun þingfundar.

[15:01]
Forseti (Ásta R. Jóhannesdóttir):

Þrátt fyrir ákvæði 4. mgr. 10. gr. þingskapa um lengd þingfunda er það tillaga forseta að þingfundir geti staðið lengur í dag en þingsköp kveða á um. Er óskað eftir atkvæðagreiðslu um þessa tillögu? Það er óskað eftir atkvæðagreiðslu um tillögu forseta.



ATKVÆÐAGREIÐSLA

[15:05]

Afbrigði um 4. mgr. 10. gr. þingskapa, um lengd þingfundar,  samþ. með 28 shlj. atkv. og sögðu

  já:  ArnaJ,  AtlG,  ÁI,  ÁPÁ,  ÁÞS,  ÁRJ,  BjörgvS,  GuðbH,  HHj,  JóhS,  JBjarn,  JRG,  KJak,  KaJúl,  KLM,  LRM,  LMós,  MSch,  OH,  RM,  SkH,  SJS,  SVÓ,  SSv,  VBj,  ÞSveinb,  ÞBack,  ÖS.
24 þm. (ÁJ,  ÁsbÓ,  BirgJ,  BJJ,  BjarnB,  EKG,  EÓÁ,  GStein,  GBS,  HöskÞ,  IllG,  JónG,  MT,  ÓN,  PHB,  REÁ,  RR,  SDG,  SIJ,  SF,  TÞH,  UBK,  VigH,  ÞSa) greiddu ekki atkv.
11 þm. (ÁsmD,  BVG,  EyH,  GLG,  GÞÞ,  KÞJ,  SER,  SII,  ÞKG,  ÞrB,  ÖJ) fjarstaddir.
2 þm. gerðu svofellda grein fyrir atkvæði sínu:

[15:03]
Illugi Gunnarsson (S):

Frú forseti. Það er ekki vandamál af hálfu Sjálfstæðisflokksins að halda hér langa fundi fram á kvöld. Við höfum margkallað eftir því að inn í þingið komi fleiri mál frá ríkisstjórninni sem snúa að stöðu heimilanna, stöðu fyrirtækjanna og þeim lausnum sem eru mögulegar til þess að takast á við þann efnahagsvanda sem nú er uppi.

Það eru mikilvæg mál fram undan í þinginu, frú forseti, sem eru skipulagslög, mannvirki og brunavarnir. Nú háttar vissulega þannig til að fram undan eru nefndadagar í vikunni en þessi þrenn lög, skipulagslög, mannvirki og brunavarnir, hafa komið áður inn í þingið og valdið töluvert miklum deilum. Það er ætlun forseta að reyna að klára þessi mál hér í dag og þá fram á kvöldið ef ekki klárast fyrir klukkan átta til að koma þessum málum áfram til nefndar. Þetta eru mjög stór mál og ég tel, frú forseti, að það hefði verið eðlilegt að við hefðum gefið okkur rýmri tíma í þinginu til að klára þessi mál, þ.e. 1. umr. þeirra, (Forseti hringir.) áður en þau verða send til nefndar vegna þess að því betur sem við vöndum okkur hér í (Forseti hringir.) umræðunni, því fyrr mega þau síðan ganga í gegn, þ.e. með því að vanda sig strax í upphafi verður ferlið styttra þegar upp er staðið. Það er betra að ná fram sátt í þinginu ef menn bara gefa sér tíma til þess.



[15:04]
Þórunn Sveinbjarnardóttir (Sf):

Frú forseti. Ég kem hingað til að gleðjast yfir því að hv. þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins skuli vera í sáttahug í dag. Ég vona að það séu allir þingmenn.

Hvað varðar frumvarp til skipulags- og mannvirkjalaga eru þetta frumvörp sem ráðherrar úr öllum stjórnmálaflokkum utan Hreyfingarinnar hafa flutt, undirbúið og unnið að árum saman. Þau hafa verið til umfjöllunar áður í þinginu, ekki bara einu sinni (Gripið fram í.) heldur tvisvar. Ég ráðlegg þingmönnum öllum að taka þátt í 1. umr., lesa frumvörpin auðvitað gaumgæfilega og vera svo með okkur í því að afgreiða hér ný skipulagslög á vori komanda. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)