139. löggjafarþing — 66. fundur
 27. janúar 2011.
umfjöllun fjárlaganefndar um skýrslu Ríkisendurskoðunar.

[10:32]
Forseti (Ásta R. Jóhannesdóttir):

Forseti vill tilkynna að með bréfi, dagsettu 25. janúar 2011, hefur forseti óskað eftir því við fjárlaganefnd að hún fjalli um skýrslu Ríkisendurskoðunar um mannauðsmál ríkisins, starfslok ríkisstarfsmanna. Þetta er í samræmi við reglur um þinglega meðferð skýrslna Ríkisendurskoðunar sem forsætisnefnd samþykkti 12. febrúar 2008.