139. löggjafarþing — 123. fundur
 12. maí 2011.
heimsókn varaforseta Dúmunnar.

[10:30]
Forseti (Ásta R. Jóhannesdóttir):

Ég vil vekja athygli hv. alþingismanna á því að varaforseti Dúmunnar, Lyubov K. Sliska, er stödd á þingpöllum ásamt sendinefnd rússneskra þingmanna. Varaforseti Dúmunnar er í heimsókn í Alþingishúsinu í tengslum við opinbera heimsókn til Íslands í boði forseta Alþingis.

Ég vil fyrir hönd Alþingis bjóða varaforseta Dúmunnar, Lyubovu K. Slisku, velkomna í Alþingishúsið og vænti þess að heimsókn hennar til Íslands verði til þess að styrkja enn frekar þau góðu tengsl sem eru milli landa okkar. Alþingi vottar varaforseta Dúmunnar og rússnesku þjóðinni vináttu og virðingu. Ég bið hv. alþingismenn að taka undir orð mín með því að rísa úr sætum. — [Þingmenn risu úr sætum.]