tilkynning um skrifleg svör.
Forseti vill tilkynna að bréf hafa borist frá ráðherrum um frestun á því að skrifleg svör berist.
Frá umhverfisráðherra: Skriflegt svar við fyrirspurn á þskj. 168, um kostnað við utanlandsferðir, frá Ásmundi Einari Daðasyni. Svar dregst til loka nóvembermánaðar.
Frá fjármálaráðherra: Skriflegt svar við fyrirspurn á þskj. 154, um virðisaukaskatt af erlendum blöðum, frá Merði Árnasyni. Svar dregst til 24. nóvember.