„Handhafar valds forseta Íslands samkvæmt 8. gr. stjórnarskrárinnar, forsætisráðherra, forseti Alþingis og forseti Hæstaréttar, gjöra kunnugt:
Vér höfum ákveðið, samkvæmt tillögu forsætisráðherra, að Alþingi skuli koma saman til framhaldsfunda mánudaginn 16. janúar 2012 kl. 15.
Gjört í Reykjavík, 13. janúar 2012.
Ásta R. Jóhannesdóttir. Jóhanna Sigurðardóttir.
Markús Sigurbjörnsson.
___________________
Jóhanna Sigurðardóttir.
Bréf handhafa valds forseta Íslands um að Alþingi skuli koma saman til framhaldsfunda.“
Ég býð hæstv. forseta, hv. alþingismenn svo og starfsmenn Alþingis velkomna til starfa á nýju ári.
Ég þakka hæstv. forsætisráðherra góðar kveðjur og býð hv. alþingismenn velkomna til vetrarþings að loknu jólahléi og óska þeim og starfsmönnum Alþingis gleðilegs árs og þakka fyrir gott samstarf á liðnu ári.