140. löggjafarþing — 67. fundur
 12. mars 2012.
tollalög o.fl., 1. umræða.
stjfrv., 584. mál (dreifing gjalddaga). — Þskj. 911.

[17:31]
fjármálaráðherra (Oddný G. Harðardóttir) (Sf):

Virðulegi forseti. Ég mæli fyrir frumvarpi til laga um breytingu á tollalögum nr. 88/2005, lögum nr. 97/1987, um vörugjald, og lögum nr. 50/1988, um virðisaukaskatt, með síðari breytingum.

Frumvarpi þessu er ætlað að framlengja þá aðgerð stjórnvalda sem áður hefur verið gripið til vegna greiðsluerfiðleika fyrirtækja í kjölfar bankahrunsins. Lagt er til að hefðbundnum gjalddögum aðflutningsgjalda og vörugjalda verði dreift á tvo gjalddaga á árinu 2012 eins og gilti fyrir árið 2011. Jafnframt er lagt til að fyrirkomulagið skerði ekki heimild til að færa til innskatts allan virðisaukaskatt viðkomandi tímabils þó að einungis hluti hans hafi verið greiddur.

Greiðsluaðlögun af sams konar meiði hefur verið lögfest nokkrum sinnum áður og síðast með lögum nr. 46/2011. Í þessu frumvarpi er gerð sú breyting frá fyrri framkvæmd að lagt er til að síðari helmingi aðflutningsgjalda skuli skila eigi síðar en á 5. degi annars mánaðar eftir lok uppgjörstímabilsins í stað 15. dags.

Verði frumvarp þetta að lögum hefur það engin áhrif á tekjur ríkissjóðs á árinu 2012 enda einungis um að ræða tilfærslu á innheimtu innan ársins. Jafnvel má gera ráð fyrir að skil gætu orðið betri vegna þessa úrræðis.

Virðulegi forseti. Að þessu sögðu legg ég til að frumvarpi þessu verði vísað til hv. efnahags- og viðskiptanefndar og til 2. umr. að aflokinni þessari umræðu.



[17:32]
Pétur H. Blöndal (S) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hæstv. fjármálaráðherra fyrir ræðuna. Hér er sagt að með frumvarpinu sé „brugðist tímabundið við greiðsluerfiðleikum fyrirtækja“. Ég spyr: Er eitthvað nýtt í því? Liggur ekki fyrir að fyrirtæki á Íslandi hafi verið í greiðsluerfiðleikum lengi? Er eitthvað nýtt yfirleitt í þessu máli? Af hverju í ósköpunum kom þetta mál ekki fram fyrir löngu?



[17:33]
fjármálaráðherra (Oddný G. Harðardóttir) (Sf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Lögin sem sett voru voru tímabundin þannig að þau sögðu aðeins til um að ráðstafanir giltu til ársins 2011, en þessi breyting gerir ráð fyrir að þær gildi einnig á árinu 2012. Nei, þetta eru nefnilega ekki ný lög heldur er þetta framlenging á því sem verið hefur. En hvort sem þau eru ný eða gömul eru þau sett til þess að koma til móts við greiðsluerfiðleika fyrirtækja.



[17:34]
Pétur H. Blöndal (S) (andsvar):

Frú forseti. Hvers vegna í ósköpunum kom þetta frumvarp ekki fram fyrir svona tveim, þrem eða fjórum vikum? Þetta lá allt saman fyrir. Nú er verið að koma hér fram með frumvarp sem þarf að keyra í gegn í hvelli. Þetta er ívilnandi ákvæði, það er ekkert í þeim sem segir að ekki megi afgreiða þetta hvenær sem er. Ég skil ekki þennan seinagang og þessa verkstjórn.



[17:34]
fjármálaráðherra (Oddný G. Harðardóttir) (Sf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég get tekið undir með hv. þingmanni að þetta frumvarp hefði mátt koma fram strax í janúar. Því miður gerðist það ekki og við erum hér að fjalla um það nú og ég vona að það fái skjóta og góða afgreiðslu svo að það gagnist sem ívilnandi aðgerð fyrir fyrirtækin í landinu.



Frumvarpið gengur til 2. umr. 

Frumvarpið gengur til efh.- og viðskn.