141. löggjafarþing — 13. fundur
 27. september 2012.
um fundarstjórn.

athugasemd vegna atkvæðagreiðslu í fyrri dagskrárlið.

[11:33]
Guðfríður Lilja Grétarsdóttir (Vg):

Forseti. Það hefur greinilega misfarist að ég bað aftur um orðið við atkvæðagreiðsluna. Ég vil bara ítreka það sem ég sagði áðan við atkvæðagreiðsluna. Að sjálfsögðu er það útgangspunktur umhverfis- og samgöngunefndar í þessu máli að fagna mjög svo virkri og öflugri aðkomu (Forseti hringir.) atvinnuveganefndar þegar við ræðum rammaáætlun og við vinnum þetta saman, enda var það upphaflega tillaga (Forseti hringir.) umhverfis- og samgöngunefndar að málið færi til beggja nefnda en það er ekki hægt samkvæmt þingsköpum.



[11:33]
Forseti (Þuríður Backman):

Forseti vill minna hv. þingmann á að biðja um orðið áður en fyrsti þingmaður tekur til máls undir þessum dagskrárlið og ræða síðan um fundarstjórn forseta.