141. löggjafarþing — 67. fundur
 17. janúar 2013.
vísun skýrslu Ríkisendurskoðunar til nefndar.

[10:31]
Forseti (Ásta R. Jóhannesdóttir):

Með bréfi, dagsettu 16. janúar síðastliðinn, hefur forseti óskað eftir því við stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd, samanber ákvæði 8. töluliðar 1. mgr. 13. gr. þingskapa, að hún fjalli um skýrslu Ríkisendurskoðunar um þjónustusamning ríkisins við Farice ehf.