141. löggjafarþing — 68. fundur
 22. janúar 2013.
verðbréfasjóðir, fjárfestingarsjóðir og fagfjárfestasjóðir, 2. umræða.
stjfrv., 106. mál (EES-reglur). — Þskj. 106, nál. m. brtt. 896.

[18:03]
Frsm. meiri hluta efh.- og viðskn. (Helgi Hjörvar) (Sf):

Virðulegur forseti. Hér er á ferðinni mál sem lýtur að samræmingu og um leið innleiðingu ýmissa ákvæða úr um fjórum gerðum á Evrópska efnahagssvæðinu og sömuleiðis á samþykkt Evrópuþingsins og lýtur að löggjöf okkar um verðbréfasjóði.

Nefndin gerði í umfjöllun sinni óverulegar breytingar á hinu upphaflega frumvarpi. Það eru þrjár breytingartillögur sem eru fyrst og fremst til skýringar og tæknilegs eðlis. Þær ásamt nefndarálitinu er að finna á þingskjali 896 og ég vísa til þess um leið og ég legg til fyrir hönd meiri hlutans að frumvarpið verði samþykkt óbreytt með þeim breytingum sem lagðar eru til.