varamaður tekur þingsæti.
Borist hefur bréf frá þingflokksformanni Framsóknarflokksins, Gunnari Braga Sveinssyni, um að Höskuldur Þórhallsson, 6. þm. Norðaust., geti ekki gegnt þingmennsku á næstunni. Í dag tekur því sæti á Alþingi 2. varamaður á lista Framsóknarflokksins í kjördæminu, Sigfús Karlsson, þar sem 1. varamaður á listanum í kjördæminu hefur boðað forföll. Þingmaðurinn hefur áður tekið sæti á Alþingi og er boðinn velkominn til starfa að nýju.