141. löggjafarþing — 104. fundur
 15. mars 2013.
starfsmannaleigur, frh. 2. umræðu.
stjfrv., 606. mál (kjör starfsmanna, EES-reglur). — Þskj. 1031, nál. 1190.

ATKVÆÐAGREIÐSLA

[16:11]

[16:10]
Sigríður Ingibjörg Ingadóttir (Sf) (um atkvæðagreiðslu):

Frú forseti. Með þessu frumvarpi er verið að herða á lögum gegn félagslegum undirboðum á vinnumarkaði. Það er mjög ánægjulegt til þess að hugsa að aðilar vinnumarkaðarins voru samstíga í þessu máli sem og velferðarnefnd í heild sinni.

Með samþykki þessa frumvarps erum við að vernda kjör launafólks á íslenskum vinnumarkaði.



 1. gr. samþ. með 47 shlj. atkv.

 2.–7. gr. samþ. með 46 shlj. atkv.

Fyrirsögn samþ. án atkvgr.

Frumvarpið gengur til 3. umr.