142. löggjafarþing — 25. fundur
 10. september 2013.
framhaldsfundir Alþingis.

[13:32]
forsætisráðherra (Sigmundur Davíð Gunnlaugsson) (F):

Handhafar valds forseta Íslands samkvæmt 8. gr. stjórnarskrárinnar, forsætisráðherra, forseti Alþingis og forseti Hæstaréttar, gjöra kunnugt:

„Vér höfum ákveðið, samkvæmt tillögu forsætisráðherra, að Alþingi skuli koma saman til framhaldsfunda þriðjudaginn 10. september 2013 kl. 13:30.

Gjört í Reykjavík, 3. september 2013.

Sigmundur D. Gunnlaugsson, Kristján L. Möller,

Markús Sigurbjörnsson.

________________________

Sigmundur D. Gunnlaugsson.

 

Bréf handhafa valds forseta Íslands um að Alþingi skuli koma saman til framhaldsfunda.“

Ég býð hæstv. forseta og hv. þingmenn velkomna til þingfunda að nýju að afloknu sumarhléi.



[13:33]
Forseti (Einar K. Guðfinnsson):

Ég þakka hæstv. forsætisráðherra góðar óskir til okkar þingmanna og býð alþingismenn jafnframt velkomna til framhaldsfunda Alþingis, 142. löggjafarþings. Samkvæmt starfsáætlun er gert ráð fyrir þingfundum í þrjá daga í þessari viku og síðan jafn mörgum í þeirri næstu. Eins og þingmönnum er kunnugt varð það niðurstaða þingflokkanna eftir að þing kom saman að loknum alþingiskosningum að efna til þingfunda nú í september með þessu sniði. Nýtt þing hefst svo þriðjudaginn 1. október. Þá verður fjárlagafrumvarp lagt fram svo sem kveðið er á um í 42. gr. stjórnarskrárinnar en í fyrsta sinn mun nú reyna á nýtt ákvæði þingskapa um að samhliða fjárlagafrumvarpi verði lögð fram frumvörp um breytingar á lögum sem útgjöld og tekjur fjárlagafrumvarpsins byggjast á.

Gera má ráð fyrir að þinghaldið nú í september muni litast af pólitískri umræðu, ekki síst þeirri sem hæst ber nú á vettvangi dagsins. Hæstv. forsætisráðherra gerir á eftir grein fyrir störfum ríkisstjórnarinnar og fara fram umræður í framhaldi af því. Á fimmtudaginn verða sömuleiðis umræður um munnlega skýrslu hæstv. utanríkisráðherra um Evrópumál. Auk hefðbundinna þingmála verða á dagskrá þingsins sérstakar umræður sem þingmenn hafa óskað eftir, óundirbúnar fyrirspurnir til ráðherra og umræður um störf þingsins auk annarra hefðbundinna þingstarfa.