143. löggjafarþing — 54. fundur
 22. janúar 2014.
velferð dýra, frh. 3. umræðu.
frv. HarB o.fl., 210. mál (eftirlit). — Þskj. 272.

ATKVÆÐAGREIÐSLA

[15:38]

Frv.  samþ. með 30:6 atkv. og sögðu

  já:  ÁPÁ,  ÁsmD,  ÁsF,  BÁ,  BjarnB,  BP,  BN,  EKG,  ELA,  GEF,  GÞÞ,  GStein,  HarB,  HE,  JónG,  KG,  KaJúl,  KLM,  LínS,  OddO,  ÓP,  PHB,  SDG,  SigrM,  SilG,  VilÁ,  VilB,  WÞÞ,  ÞorS,  ÞórE.
nei:  BirgJ,  BjG,  HHG,  LRM,  SSv,  ÖJ.
3 þm. (JÞÓ,  SII,  VBj) greiddu ekki atkv.
24 þm. (ÁÞS,  BjÓ,  ElH,  EyH,  FSigurj,  GuðbH,  GBS,  HBK,  HHj,  HöskÞ,  IllG,  JMS,  KJak,  KÞJ,  OH,  PJP,  REÁ,  RR,  RM,  SIJ,  SJS,  ValG,  VigH,  ÖS) fjarstaddir.
1 þm. gerði svofellda grein fyrir atkvæði sínu:

[15:37]
Lilja Rafney Magnúsdóttir (Vg):

Herra forseti. Hér greiðum við atkvæði um frumvarp til laga breytingu á lögum um velferð dýra, mikinn málaflokk og lagafrumvarp sem samþykkt var á síðasta þingi í breiðri sátt allra flokka á þingi. Mig undrar að menn telji að það eigi nú að vera forgangsvinna ríkisstjórnarinnar að draga úr eftirliti með velferð dýra. Við þekkjum dæmi sem komið hafa upp á undanförnum mánuðum og árum þar sem þessi mál eru langt frá því að vera í góðu lagi. Við vitum ekkert hvar það getur borið niður. Að byggja þetta, eins og þessar breytingar ganga út á, á áhættuflokkun sem er ekki búið að vinna og liggur ekki fyrir finnst mér mjög alvarlegur hlutur. Það liggur heldur ekkert fyrir um það hvað eigi að sparast í þessum málum.

Ég skora á þá sem bera velferð dýra fyrir brjósti að greiða atkvæði gegn þessari breytingu. Hún er ekki velferð dýra í landinu til framdráttar. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)