144. löggjafarþing — 19. fundur
 15. október 2014.
mannabreytingar í nefnd.

[15:03]
Forseti (Einar K. Guðfinnsson):

Forseta hefur borist erindi frá þingflokki Samfylkingarinnar, dagsett í dag, um mannaskipti í nefnd þingsins, samanber 16. gr. þingskapa, að Guðbjartur Hannesson taki sæti Helga Hjörvars sem aðalmaður í Íslandsdeild Norðurlandaráðs og Helgi Hjörvar taki sæti Guðbjarts Hannessonar sem varamaður í sömu nefnd. Þessi breyting skoðast samþykkt án atkvæðagreiðslu ef enginn hreyfir andmælum.