varamaður tekur þingsæti.
Borist hefur bréf frá hv. 4. þm. Reykv. s., Pétri H. Blöndal, um að hann geti ekki sótt þingfundi á næstunni. Í dag tekur því sæti á Alþingi 2. varamaður á lista Sjálfstæðisflokksins í kjördæminu, Áslaug María Friðriksdóttir, en 1. varamaður á listanum situr nú þegar á Alþingi sem þingmaður.
Áslaug María Friðriksdóttir hefur áður tekið sæti á Alþingi og er boðin velkomin til starfa að nýju.