144. löggjafarþing — 87. fundur
 13. apríl 2015.
um fundarstjórn.

afsökunarbeiðni.

[16:56]
Ragnheiður Ríkharðsdóttir (S):

Virðulegur forseti. Ég ætla að fá að nota þennan ræðustól til að biðjast afsökunar á framgöngu minni. Ég var með frammíkall eftir ræðu hv. þm. Oddnýjar G. Harðardóttur. Það frammíkall mitt var ómaklegt og ég bið hv. þm. Oddnýju G. Harðardóttur afsökunar á því.