varamaður tekur þingsæti.
Borist hefur bréf frá formanni þingflokks Sjálfstæðisflokksins um að 2. þm. Suðurk., Ragnheiður E. Árnadóttir, geti ekki sótt þingfundi á næstunni. Í dag tekur því sæti á Alþingi 1. varamaður á lista Sjálfstæðisflokksins í kjördæminu, Geir Jón Þórisson.
Geir Jón Þórisson hefur áður tekið sæti á Alþingi og er boðinn velkominn til starfa að nýju.