144. löggjafarþing — 91. fundur
 20. apríl 2015.
varamaður tekur þingsæti.

[15:01]
Forseti (Einar K. Guðfinnsson):

Borist hefur bréf frá varaformanni þingflokks Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs um að 8. þm. Suðvest., Ögmundur Jónasson, geti ekki sótt þingfundi á næstunni. Í dag tekur því sæti á Alþingi sem varamaður fyrir hann 1. varamaður á lista Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs í kjördæminu, Rósa Björk Brynjólfsdóttir.

Rósa Björk Brynjólfsdóttir hefur áður tekið sæti á Alþingi og er boðin velkomin til starfa að nýju.