144. löggjafarþing — 95. fundur
 27. apríl 2015.
tilkynning um skrifleg svör.

[15:03]
Forseti (Einar K. Guðfinnsson):

Forseti vill tilkynna að borist hafa tvö bréf frá fjármála- og efnahagsráðuneytinu þar sem óskað er eftir fresti til að veita skrifleg svör við fyrirspurnum á þskj. 1189, um byggingarkostnað Hörpu, tónlistar- og ráðstefnuhúss, frá Pétri H. Blöndal, og á þskj. 1195, um bifreiðahlunnindi ríkisstarfsmanna, frá Brynhildi Pétursdóttur.