144. löggjafarþing — 102. fundur
 5. maí 2015.
varamaður tekur þingsæti.

[13:32]
Forseti (Kristján L. Möller):

Borist hefur bréf frá 7. þm. Norðvest., Jóhönnu Maríu Sigmundsdóttur, um að hún geti ekki sinnt þingstörfum á næstunni. Í dag tekur því sæti á Alþingi 2. varamaður á lista Framsóknarflokks í kjördæminu, Anna María Elíasdóttir, en 1. varamaður í kjördæminu hefur boðað forföll.

Anna María Elíasdóttir hefur áður tekið sæti á Alþingi og er hún boðin velkomin til starfa á ný.