145. löggjafarþing — 5. fundur
 14. september 2015.
varamenn taka þingsæti.

[15:06]
Forseti (Einar K. Guðfinnsson):

Borist hefur bréf frá hv. 6. þm. Reykv. n., Björt Ólafsdóttur, um að hún geti ekki sinnt þingstörfum á næstunni. Í dag tekur því sæti á Alþingi 1. varamaður á lista Bjartrar framtíðar í kjördæminu, Heiða Kristín Helgadóttir.

Heiða Kristín Helgadóttir hefur áður tekið sæti á Alþingi og er hún boðin velkomin til starfa að nýju.

Borist hefur bréf frá 11. þm. Reykv. s., Óttari Proppé, um að hann geti ekki sinnt þingstörfum á næstunni. Í dag tekur því sæti á Alþingi 1. varamaður á lista Bjartrar framtíðar í kjördæminu, Brynhildur Björnsdóttir.

Brynhildur hefur áður tekið sæti á Alþingi og er hún boðin velkomin til starfa að nýju.