tilkynning um skrifleg svör.
Borist hefur bréf frá velferðarráðuneytinu þar sem óskað er eftir fresti til að veita skriflegt svar við fyrirspurn á þskj. 363, um innheimtuaðgerðir Íbúðalánasjóðs, frá Birgittu Jónsdóttur.
Einnig hefur borist bréf frá atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu þar sem óskað er eftir fresti til að veita skriflegt svar við fyrirspurn á þskj. 263, um rannsökuð mál hjá Samkeppniseftirlitinu, frá Guðlaugi Þór Þórðarsyni.