Frestun á skriflegum svörum.
Borist hafa tvö bréf frá atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu þar sem óskað er eftir fresti til að veita skriflegt svar við fyrirspurn á þskj. 857, um starfsemi Stjórnstöðvar ferðamála, frá Lilju Rafneyju Magnúsdóttur og við fyrirspurn á þskj. 747, um rannsóknir í ferðaþjónustu, frá Vilhjálmi Árnasyni.