146. löggjafarþing — 3. fundur
 8. desember 2016.
drengskaparheit.

[13:30]
Forseti (Steingrímur J. Sigfússon):

Einn nýkjörinn þingmaður, hv. 9. þm. Reykv. s., Lilja Alfreðsdóttir, var fjarstödd á þingsetningarfundi er kjörbréf hennar var samþykkt. Ég býð hana velkomna til þings. Hún mun nú undirrita drengskaparheit að stjórnarskránni samkvæmt 2. gr. þingskapa.

Ég bið skrifstofustjóra Alþingis að færa hv. þingmanni heitstafinn til undirritunar.

 

[Lilja Alfreðsdóttir, 9. þm. Reykv. s., undirritaði drengskaparheit að stjórnarskránni.]



[13:31]
Forseti (Steingrímur J. Sigfússon):

Lilja Alfreðsdóttir hefur nú undirritað drengskaparheit að stjórnarskránni og er boðin velkomin til starfa.