146. löggjafarþing — 56. fundur
 6. apríl 2017.
varamenn taka þingsæti.

[10:31]
Forseti (Unnur Brá Konráðsdóttir):

Borist hefur bréf frá formanni þingflokks Sjálfstæðisflokksins um að 1. þm. Reykv. n., Guðlaugur Þór Þórðarson, geti ekki sinnt þingmennsku á næstunni. Í dag tekur því sæti á Alþingi 3. varamaður á lista Sjálfstæðisflokksins í kjördæminu, Jón Ragnar Ríkarðsson.

Kjörbréf hans hefur þegar verið rannsakað og samþykkt en hann hefur ekki áður tekið sæti á Alþingi og ber því að undirskrifa drengskaparheit að stjórnarskránni.

 

[Jón Ragnar Ríkarðsson, 1. þm. Reykv. n., undirritaði drengskaparheit að stjórnarskránni.]



[10:32]
Forseti (Unnur Brá Konráðsdóttir):

Jón Ragnar Ríkharðsson hefur undirskrifað drengskaparheit að stjórnarskránni og er boðinn velkominn til starfa á Alþingi.

Borist hefur bréf frá formanni þingflokks Sjálfstæðisflokksins um að 4. þm. Reykv. s., Sigríður Á. Andersen, geti ekki sinnt þingmennsku á næstunni. Í dag tekur því sæti á Alþingi 2. varamaður á lista Sjálfstæðisflokksins í kjördæminu, Jóhannes Stefánsson.

Kjörbréf hans hefur þegar verið rannsakað og samþykkt en hann hefur ekki áður tekið sæti á Alþingi og ber því að undirskrifa drengskaparheit að stjórnarskránni.

 

[Jóhannes Stefánsson, 4. þm. Reykv. s., undirritaði drengskaparheit að stjórnarskránni.]



[10:32]
Forseti (Unnur Brá Konráðsdóttir):

Jóhannes Stefánsson hefur undirskrifað drengskaparheit að stjórnarskránni og er boðinn velkominn til starfa á Alþingi.