146. löggjafarþing — 63. fundur
 4. maí 2017.
Frestun á skriflegum svörum.
ráðstafanir samkvæmt þingsályktun nr. 49/145, fsp. LRM, 336. mál. — Þskj. 461.
fylgdarlaus börn sem sækja um alþjóðlega vernd, fsp. RBB, 284. mál. — Þskj. 394.

[10:31]
Forseti (Unnur Brá Konráðsdóttir):

Borist hafa tvö bréf frá dómsmálaráðuneyti þar sem óskað er eftir fresti til að veita skriflegt svar við fyrirspurn á þskj. 461, um ráðstafanir samkvæmt þingsályktun nr. 49/145, frá Lilju Rafneyju Magnúsdóttur, og fyrirspurn á þskj. 394, um fylgdarlaus börn sem sækja um alþjóðlega vernd, frá Rósu Björk Brynjólfsdóttur.