frestun á fundum Alþingis, ein umræða.
Virðulegi forseti. Ég mæli fyrir tillögu til þingsályktunar um samþykki til frestunar á fundum Alþingis samkvæmt 1. mgr. 23. gr. stjórnarskrárinnar. Tillagan er svohljóðandi:
Alþingi ályktar að veita samþykki til þess að fundum þingsins verði frestað frá 31. maí 2017, eða síðar ef nauðsyn krefur, til 12. september 2017.
Tillagan skýrir sig sjálf.