149. löggjafarþing — 18. fundur
 11. október 2018.
eftirlit með skipum, 1. umræða.
stjfrv., 188. mál (stjórnvaldssektir). — Þskj. 193.

[16:34]
samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra (Sigurður Ingi Jóhannsson) (F):

Virðulegi forseti. Ég mæli hér fyrir frumvarpi til laga um breytingu á lögum um eftirlit með skipum. Með því er lagt til að Samgöngustofa geti lagt stjórnvaldssektir á þá aðila sem brjóta gegn ákvæðum laganna og reglugerða settra samkvæmt þeim. Mælt var fyrir frumvarpi sama efnis á síðasta löggjafarþingi en það náði ekki fram að ganga og er því mælt fyrir því hér að nýju.

Markmið laga um eftirlit með skipum er að tryggja öryggi íslenskra skipa, áhafna þeirra og farþega og efla varnir gegn mengun frá skipum. Til að lögin nái tilgangi sínum er almennt talið að fylgja þurfi eftir brotum á þeim með viðurlögum.

Í lögum um eftirlit með skipum er fyrst og fremst gert ráð fyrir því að brot gegn lögunum séu kærð til lögreglu til rannsóknar.

Aðeins er að finna eina tegund stjórnsýsluviðurlaga en það er farbann sem eðli máls samkvæmt kann að vera mjög þungbært úrræði fyrir útgerðir og sjómenn. Það er almennt talið bæði skilvirkara og kostnaðarminna úrræði fyrir alla aðila að leggja á stjórnvaldssektir en að kæra brot til lögreglurannsóknar og þaðan til dómstóla ef mál fara á þann veg. Kostnaður hins brotlega, t.d. vegna aðstoðar lögmanna, er oftast minni þegar um stjórnsýsluviðurlög er að ræða.

Með frumvarpinu er lagt til að hægt sé að leggja stjórnvaldssektir á einstaklinga sem og lögaðila. Ástæðan fyrir því að lagt er til að hægt sé að leggja sekt á einstaklinga er hið sérstaka eðli sjóréttarins en þar er ábyrgð skipstjóra og annarra stjórnenda skipa mikil. Stafar það fyrst og fremst af hinni miklu fjarlægð milli skips og útgerðar þar sem útgerð þarf að treysta stjórnendum skips fyrir því og áhöfninni.

Við útfærslu frumvarpsins var höfð til hliðsjónar skýrsla nefndar um viðurlög við efnahagsbrotum þar sem ítarlega er farið yfir þær kröfur sem gera þarf til ákvæða um stjórnvaldssektir ásamt fyrirmyndum úr öðrum lögum, svo sem lögum um leigu skráningarskyldra ökutækja, lögum um vátryggingastarfsemi og efnalögum.

Virðulegur forseti. Ég hef hér gert grein fyrir helstu efnisatriðum þessa frumvarps og legg til að frumvarpinu verði að lokinni þessari umræðu vísað til hv. umhverfis- og samgöngunefndar og 2. umr.



[16:37]
Helga Vala Helgadóttir (Sf) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hæstv. samgönguráðherra kærlega fyrir kynninguna á frumvarpinu. Að undanförnu höfum við fjallað mikið um eftirlitshlutverk stjórnvalda og það hvernig stjórnvöldum gengur að sinna eftirlitsskyldum sínum, hvar sem er í okkar ágæta kerfi. Ég velti því fyrir mér hvort gert sé ráð fyrir auknu fjármagni til Samgöngustofu og til þeirra eftirlitsaðila sem eiga svo að sinna því eftirliti, hvar sem er, hvort gert sé ráð fyrir því í fjárlögum og áætlunum.



[16:38]
samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra (Sigurður Ingi Jóhannsson) (F) (andsvar):

Virðulegur forseti. Það er ekki mat okkar og þeirra sem sömdu þetta frumvarp að þörf sé á því. Samgöngustofa hefur þetta eftirlit með höndum. Hana hefur einfaldlega skort úrræði til aðgerða. Umræðan varð til þess að málið var ekki klárað á síðasta löggjafarþingi en upphaflega kemur beiðni um þetta frá Landhelgisgæslunni, en önnur leið væri sú að Landhelgisgæslan væri með sambærilegar heimildir og lögregla, gæti klárað mál á staðnum. En hér er verið að leggja til að Samgöngustofa, sem hvort eð er hefur þetta eftirlit nú þegar, geti gengið þessa leið af því að þetta eru minna íþyngjandi úrræði en að kalla til lögreglu og setja í gang lögreglurannsókn eins og ég lýsti í innganginum.



[16:39]
Helga Vala Helgadóttir (Sf) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra kærlega fyrir svarið en spyr þá kannski í framhaldinu: Eru þá ekki fyrirsjáanleg nein viðbótarverkefni sem felast í þessu? Er þetta ekki eitthvað sem Samgöngustofa þarf að bregðast við með auknum mannafla hjá sér, fjölgun starfskrafta eða einhverju slíku? Er þetta það lítið verkefni að þau geti bara bætt þessu við sín daglegu störf?



[16:39]
samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra (Sigurður Ingi Jóhannsson) (F) (andsvar):

Virðulegi forseti. Eins og ég hef skilið það, og við höfum verið að kanna fjárhagsstöðu og fjárhag eftirlitsstofnana, þar á meðal Samgöngustofu, er þetta algerlega innan þeirra marka sem Samgöngustofa getur gert. En nefndin mun væntanlega spyrja eftir þessum upplýsingum og einnig fara yfir þá sömu umræðu sem kannski varð til þess að málið var ekki klárað í fyrra, hvort aðrar leiðir séu færar. Að mati okkar er þetta einfaldasta leiðin þar sem eftirlitsaðilinn er í raun að fá heimild til þess að klára verkefnið með öðrum hætti og einfaldari og þar af leiðandi ætti minni tími að fara í það en hina leiðina sem er verulega íþyngjandi.



Frumvarpið gengur til 2. umr. 

Frumvarpið gengur til um.- og samgn.