149. löggjafarþing — 78. fundur
 11. mars 2019.
Frestun á skriflegum svörum.
orkupakki ESB, eftirlitsstofnanir sambandsins og EES-samningurinn, fsp. ÓBK, 64. mál. — Þskj. 64.
aðgerðir gegn útbreiðslu skógarkerfils, fsp. HSK, 564. mál. — Þskj. 949.
tillögur að breyttu greiðslufyrirkomulagi á dvalar- og hjúkrunarheimilum, fsp. UBK, 575. mál. — Þskj. 967.

[15:03]
Forseti (Steingrímur J. Sigfússon):

Borist hafa bréf frá eftirfarandi ráðherrum þar sem óskað er eftir fresti til að veita skrifleg svör við fyrirspurnum: Frá utanríkisráðherra vegna fyrirspurnar á þskj. 64, um orkupakka ESB, eftirlitsstofnanir sambandsins og EES-samninginn, frá Óla Birni Kárasyni, frá umhverfis- og auðlindaráðherra vegna fyrirspurnar á þskj. 949, um aðgerðir gegn útbreiðslu skógarkerfils, frá Höllu Signýju Kristjánsdóttur, og frá félags- og barnamálaráðherra vegna fyrirspurnar á þskj. 967, um tillögur að breyttu greiðslufyrirkomulagi á dvalar- og hjúkrunarheimilum, frá Unni Brá Konráðsdóttur.