varamenn taka þingsæti.
Borist hefur bréf frá formanni þingflokks Sjálfstæðisflokksins um að 1. þm. Reykv. n., Guðlaugur Þór Þórðarson, verði fjarverandi á næstunni í nokkrum ferðum erlendis í opinberum erindum fram til 12. apríl. Í dag, þriðjudaginn 2. apríl, tekur því sæti á Alþingi sem varamaður fyrir hann 1. varamaður á lista Sjálfstæðisflokksins í kjördæminu, Albert Guðmundsson.
Hann hefur áður tekið sæti á Alþingi og er boðinn velkominn til starfa að nýju.