150. löggjafarþing — 50. fundur
 21. janúar 2020.
Frestun á skriflegum svörum.
starfsmannamál stofnana á málefnasviði ráðherra, fsp. BirgÞ, 415. mál. — Þskj. 570.
starfsmannamál ráðuneytisins og stofnana á málefnasviði ráðherra, fsp. BirgÞ, 418. mál. — Þskj. 573.
starfsmannamál ráðuneytisins, fsp. BirgÞ, 417. mál. — Þskj. 572.
kafbátaleit, fsp. AIJ, 427. mál. — Þskj. 584.
nefndir, starfs- og stýrihópar, fsp. ÞorstV, 499. mál. — Þskj. 788.
starfsmannamál ráðuneytisins og stofnana þess, fsp. BirgÞ, 416. mál. — Þskj. 571.
heimild forstöðumanna ríkisstofnana til að hækka eftirlaun starfsmanna, fsp. ÓÍ, 444. mál. — Þskj. 618.
nefndir, starfs- og stýrihópar, fsp. ÞorstV, 505. mál. — Þskj. 794.

[13:31]
Forseti (Steingrímur J. Sigfússon):

Borist hafa bréf frá eftirfarandi ráðherrum þar sem óskað er eftir fresti til að veita skrifleg svör við fyrirspurnum: Frá ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra vegna fyrirspurnar á þskj. 570, um starfsmannamál stofnana á málefnasviði ráðherra, frá Birgi Þórarinssyni. Frá sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra vegna fyrirspurnar á þskj. 573, um starfsmannamál ráðuneytisins og stofnana á málefnasviði ráðherra, frá Birgi Þórarinssyni. Frá utanríkisráðherra vegna fyrirspurna á þskj. 572, um starfsmannamál ráðuneytisins, frá Birgi Þórarinssyni; á þskj. 584, um kafbátaleit, frá Andrési Inga Jónssyni; og á þskj. 788, um nefndir, starfs- og stýrihópa, frá Þorsteini Víglundssyni. Frá umhverfis- og auðlindaráðherra vegna fyrirspurnar á þskj. 571, um starfsmannamál ráðuneytisins og stofnana þess, frá Birgi Þórarinssyni. Frá fjármála- og efnahagsráðherra vegna fyrirspurnar á þskj. 618, um heimild forstöðumanna ríkisstofnana til að hækka eftirlaun starfsmanna, frá Ólafi Ísleifssyni. Loks er bréf frá félags- og barnamálaráðherra vegna fyrirspurnar á þskj. 794, um nefndir, starfs- og stýrihópa, frá Þorsteini Víglundssyni.