150. löggjafarþing — 54. fundur
 29. janúar 2020.
Frestun á skriflegum svörum.
Nýi Landspítalinn ohf., fsp. BergÓ, 520. mál. — Þskj. 859.
starfsmannafjöldi Rarik, fsp. AIJ, 496. mál. — Þskj. 781.
athugasemdir ráðuneytis við lögfræðilegar álitsgerðir, fsp. ÓÍ, 124. mál. — Þskj. 124.

[15:00]
Forseti (Steingrímur J. Sigfússon):

Borist hafa tvö bréf frá fjármála- og efnahagsráðherra þar sem óskað er eftir fresti til að veita skrifleg svör við fyrirspurnum á þskj. 859, um Nýja Landspítalann ohf., frá Bergþóri Ólasyni, og á þskj. 781, um starfsmannafjölda Rarik, frá Andrési Inga Jónssyni.

Einnig hefur borist bréf frá utanríkisráðherra þar sem óskað er eftir fresti til að veita skriflegt svar við fyrirspurn á þskj. 124, um athugasemdir ráðuneytis við lögfræðilegar álitsgerðir, frá Ólafi Ísleifssyni.