mannabreyting í nefnd.
Forseti vill tilkynna að borist hefur erindi frá þingflokki Framsóknarflokksins um mannaskipti í nefndum þingsins, samanber 16. gr. þingskapa, þannig að Willum Þór Þórsson taki sæti sem aðalmaður í efnahags- og viðskiptanefnd í stað Silju Daggar Gunnarsdóttur og Silja Dögg Gunnarsdóttir taki sæti Höllu Signýjar Kristjánsdóttur sem varamaður í sömu nefnd.
Þessar mannabreytingar skoðast samþykktar án atkvæðagreiðslu ef enginn hreyfir andmælum.