150. löggjafarþing — 120. fundur
 18. júní 2020.
Frestun á skriflegum svörum.
birting alþjóðasamninga, fsp. AIJ, 477. mál. — Þskj. 710.
ræstingaþjónusta, fsp. AIJ, 835. mál. — Þskj. 1459.
aðgerðaáætlun byggðaáætlunar, fsp. AFE, 677. mál. — Þskj. 1142.
lögbundin verkefni ráðuneytisins, fsp. BLG, 816. mál. — Þskj. 1438.
samningar samkvæmt lögum um opinber fjármál, fsp. BLG, 690. mál. — Þskj. 1164.
áhrif erlendra ríkja á niðurstöður kosninga, fsp. HHG, 624. mál. — Þskj. 1052.
skuldbinding íslenska ríkisins um að réttilega innleiddar EES-gerðir hafi forgangsáhrif í íslenskum rétti, fsp. ÓÍ, 113. mál. — Þskj. 113.
athugasemdir ráðuneytis við lögfræðilegar álitsgerðir, fsp. ÓÍ, 124. mál. — Þskj. 124.
kostnaður ráðuneytisins við skrifleg svör við fyrirspurnum, fsp. BN, 809. mál. — Þskj. 1418.

[15:01]
Forseti (Þorsteinn Sæmundsson):

Borist hafa bréf frá utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra þar sem óskað er eftir fresti til að veita skrifleg svör við fyrirspurnum á þskj. 710, um birtingu alþjóðasamninga, á þskj. 1459, um ræstingarþjónustu, frá Andrési Inga Jónssyni, á þskj. 1142, um aðgerðaáætlun byggðaáætlunar, frá Albertínu Friðbjörgu Elíasdóttur, á þskj. 1438, um lögbundin verkefni ráðuneytisins, og á þskj. 1164, um samninga samkvæmt lögum um opinber fjármál, frá Birni Leví Gunnarssyni, á þskj. 1052, um áhrif erlendra ríkja á niðurstöður kosninga, frá Helga Hrafni Gunnarssyni, á þskj. 113, um skuldbindingu íslenska ríkisins um að réttilega innleiddar EES-gerðir hafi forgangsáhrif í íslenskum rétti, og á þskj. 124, um athugasemdir ráðuneytis við lögfræðilegar álitsgerðir, frá Ólafi Ísleifssyni, og loks við fyrirspurn frá Brynjari Níelssyni á þskj. 1418, um kostnað ráðuneytisins við skrifleg svör við fyrirspurnum.