afbrigði um dagskrármál.
Svo háttar til um eina dagskrármálið að of skammt er liðið frá útbýtingu þess. Þarf því að leita samþykkis fyrir því að þingskjölin fari á dagskrá og fer nú fram atkvæðagreiðsla um afbrigðin.
Afbrigðin eru samþykkt með 53 samhljóða atkvæðum og gleður það forseta mjög hvað kerfið virkar vel.
[21:50]
Of skammt var liðið frá útbýtingu þskj. í eina dagskrármálinu. — Afbrigði samþ. með 53 shlj. atkv.