151. löggjafarþing — 15. fundur
 4. nóvember 2020.
Frestun á skriflegum svörum.
úthlutun byggðakvóta, fsp. IngS, 64. mál. — Þskj. 64.
innflutningur á laxafóðri, fsp. IngS, 68. mál. — Þskj. 68.
laxa- og fiskilús, fsp. IngS, 69. mál. — Þskj. 69.
einangrun fanga, fsp. HHG, 174. mál. — Þskj. 175.
agaviðurlög fanga, fsp. HHG, 175. mál. — Þskj. 176.
einstaklingar með greindan hegðunarvanda eftir heilaskaða, fsp. HKF, 71. mál. — Þskj. 71.
biðtími hjá Greiningar - og ráðgjafastöð ríkisins, fsp. AKÁ, 150. mál. — Þskj. 151.

[15:01]
Forseti (Steingrímur J. Sigfússon):

Borist hafa bréf þar sem óskað er eftir fresti til þess að veita skrifleg svör við fyrirspurnum: Frá sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra við fyrirspurn á þskj. 64, um úthlutun byggðakvóta, á þskj. 68, um innflutning á laxafóðri, og á þskj. 69, um laxa- og fiskilús, allar frá Ingu Sæland. Frá dómsmálaráðherra við fyrirspurn á þskj. 175, um einangrun fanga, og á þskj. 176, um agaviðurlög fanga, báðar frá Helga Hrafni Gunnarssyni. Frá félags- og barnamálaráðherra við fyrirspurn á þskj. 71, um einstaklinga með greindan hegðunarvanda eftir heilaskaða, frá Hönnu Katrínu Friðriksson, og á þskj. 151, um biðtíma hjá Greiningar- og ráðgjafastöð ríkisins, frá Önnu Kolbrúnu Árnadóttur.