151. löggjafarþing — 65. fundur
 11. mars 2021.
sjúklingatrygging, frh. 2. umræðu.
stjfrv., 457. mál (tryggingavernd í klínískum lyfjarannsóknum). — Þskj. 777, nál. m. brtt. 963.

ATKVÆÐAGREIÐSLA

[15:42]

[15:41]
Sara Elísa Þórðardóttir (P) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegur forseti. Ég fagna þessu máli. Þetta er að sjálfsögðu réttarbót fyrir þá einstaklinga sem taka þátt í klínískum rannsóknum þar sem ekki er bakhjarl og leysir úr ákveðinni óvissu sem ríkt hefur í þessum málum. Hins vegar gagnrýndi Landspítalinn í umsögn sinni að hámarksupphæð bóta úr sjúklingatryggingu væri of lág, hún er aðeins brot af því sem almennt er miðað við á Norðurlöndunum hvað varðar viðlíka mál. Það hefði mátt taka meira tillit til þess. Komið er inn á það í nefndarálitinu en það hefði mátt hækka þessa upphæð. Almennt er þetta gott mál og réttarbót en betur má ef duga skal.



 1. gr. samþ. með 46 shlj. atkv.

Brtt. í nál. 963 (ný grein, verður 2. gr.) samþ. með 46 shlj. atkv.

 2. gr. (verður 3. gr.) samþ. með 44 shlj. atkv.

Fyrirsögn samþ. án atkvgr.

Frumvarpið gengur til 3. umr.