151. löggjafarþing — 91. fundur
 6. maí 2021.
Frestun á skriflegum svörum.
ný verkefni Landspítala, fsp. ÓBK, 723. mál. — Þskj. 1208.
sjúkrahótel Landspítala, fsp. ÓBK, 725. mál. — Þskj. 1210.
rekstur Landspítala árin 2010 til 2020, fsp. ÓBK, 722. mál. — Þskj. 1207.
kostnaður við skimun fyrir brjóstakrabbameini, fsp. ÓBK, 724. mál. — Þskj. 1209.
tollasamningur við ESB, fsp. SPJ, 665. mál. — Þskj. 1134.
ráðgjafaþjónusta, verktaka og tímabundin verkefni, fsp. GBS, 661. mál. — Þskj. 1130.

[13:02]
Forseti (Steingrímur J. Sigfússon):

Borist hafa bréf frá heilbrigðisráðherra þar sem óskað er eftir fresti til þess að veita skrifleg svör við fyrirspurnum frá Óla Birni Kárasyni á þskj. 1208, um ný verkefni Landspítala; á þskj. 1210, um sjúkrahótel Landspítala; á þskj. 1207, um rekstur Landspítala árin 2010–2020; og á þskj. 1209, um kostnað við skimun fyrir brjóstakrabbameini.

Einnig hafa borist bréf frá utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra þar sem óskað er eftir fresti til þess að veita skrifleg svör við fyrirspurnum á þskj. 1134, um tollasamning við Evrópusambandið, frá Sigurði Páli Jónssyni; og á þskj. 1130, um ráðgjafaþjónustu, verktöku og tímabundin verkefni, frá Gunnari Braga Sveinssyni.