151. löggjafarþing — 103. fundur
 31. maí 2021.
Frestun á skriflegum svörum.
lagaleg ráðgjöf, fsp. BLG, 678. mál. — Þskj. 1147.
landgrunnskröfur Íslands, fsp. AIJ, 780. mál. — Þskj. 1378.

[13:01]
Forseti (Steingrímur J. Sigfússon):

Borist hafa bréf frá utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra þar sem óskað er eftir fresti til þess að veita skrifleg svör við fyrirspurnum á þskj. 1147, um lagalega ráðgjöf, frá Birni Leví Gunnarssyni, og á þskj. 1378, um landgrunnskröfur Íslands, frá Andrési Inga Jónssyni.