151. löggjafarþing — 109. fundur
 8. júní 2021.
stjórnarskrárbreytingar.

[13:11]
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir (V):

Virðulegi forseti. Ég kem hingað upp til að eiga gott samtal við hæstv. forsætisráðherra, sem ég ætla núna að ávarpa sem formann Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs, af því að við unnum í stórum dráttum saman að stjórnarskrárbreytingum þar sem við komum saman sem formenn stjórnmálaflokkanna. Núna liggur fyrir að það er eitt mál inni í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd. Ég ætla ekki að dvelja við þau mistök sem ég held að formaður Vinstri grænna hafi gert, að hafa sameinað málin fjögur í eitt mál, því að nú stöndum við frammi fyrir því að þingi er að ljúka og við sjáum fyrir endann á ákveðnum málum en ekki samt stjórnarskránni og þeim breytingum sem þar hafa verið lagðar fyrir.

Ég vil ítreka að Viðreisn hefur einmitt ekki nálgast þetta mál út frá stjórn/stjórnarandstöðu, heldur tekið prinsippákvörðun um að styðja við þær breytingar sem eru skynsamlegar. Ég tel enn, og ætla ekkert að fara í einhverja leiki í stjórnarandstöðu í því sambandi, að það sé skynsamlegt að taka að einhverju leyti stjórnarskrárbreytingar í gegnum þingið og sýna það að þingið getur breytt stjórnarskránni. Ég hefði viljað sjá stærri og meiri skref, það er t.d. ekkert launungarmál að við deildum um jafnt vægi atkvæða. En það var samkomulag um það í upphafi að fjalla næst um það. En þegar rökræðukönnunin sem gerð var sýndi ótvírætt fram á vilja þjóðarinnar til að breyta því fyrirkomulagi hefði ég gjarnan viljað hafa það með. En gott og vel, það varð ekki.

Skilaboð mín til hæstv. ráðherra eru þau að Viðreisn a.m.k. stendur ekki í vegi, að hluta til, fyrir því að þessar breytingar á stjórnarskrá fari í gegnum þingið. Hins vegar er líka meiri hluti fyrir því hjá ríkisstjórninni að ýta áfram auðlindaákvæðinu. Gott og vel. Ef það kemur hingað þá ætla ég líka að segja að ég mun ekki fara í málþóf varðandi það ömurlega ákvæði, heldur einfaldlega láta þjóðina taka afstöðu til þess þegar þar að kemur. En ég vil hvetja hæstv. forsætisráðherra og formann VG til dáða í þessu efni og undirstrika að ég sé ekki að þessi mál, þessi mikilvægu mál, séu föst í nefnd. Ég held að við eigum að reyna að gera allt til þess að taka skref í þessu skyni og afgreiða a.m.k. hluta þeirra.



[13:13]
forsætisráðherra (Katrín Jakobsdóttir) (Vg):

Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur fyrir að taka upp þessi stóru mál. Ég mælti fyrir frumvarpinu í febrúar og ég vil taka það fram að mér fannst 1. umr. um frumvarp mitt vera góð umræða. Mér fannst hún málefnaleg. Ég dró það út úr þeirri umræðu að það kynni að vera samhljómur um ýmsar þær breytingar sem lagðar eru til í frumvarpinu þó að það sé augljóslega ekki samhljómur um allar breytingar. Ég er auðvitað ekki sammála hv. þingmanni og einkunn hennar um auðlindaákvæðið, sem ég tel einmitt vera skýrt og snúast um grundvallarreglurnar sem við viljum setja um auðlindanýtingu í samfélaginu. Mér finnst þetta vera gott ákvæði. Ég átta mig hins vegar á því að það er ekki samstaða um það. Ég veit að kallað hefur verið eftir því í hv. stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd hvort unnt sé að ná saman um einhver ákvæði, hvort það séu einhver ákvæði sem hv. þingmenn sem þar sitja telja flöt á að sameinast um, þó að það sé ekki allt. Þá er það auðvitað hægur vandi fyrir nefndina að afgreiða hluta málsins í samstöðu og skilja önnur mál eftir til frekari úrvinnslu síðar meir. Ég hef hvatt til þess ef slíkur vilji er fyrir hendi.

Mig langar hins vegar að segja það hér, í ljósi þess að stjórnarskrá lýðveldisins gerir ráð fyrir því að þegar stjórnarskrárbreytingar hafa verið afgreiddar beri að rjúfa þing og boða til kosninga, þannig er það ákvæði sem er í stjórnarskránni, að ég held að það sé ekki gott ákvæði. Ég held að sú pressa sem skapast hér á afgreiðslu stjórnarskrárbreytinga í aðdraganda kosninga geri fólki mjög erfitt fyrir að ná saman um mál sem jafnvel væri hægt að ná saman um undir öðrum kringumstæðum. Þannig að ég ætla bara að fá að lýsa þeirri skoðun minni að ég tel, með þennan margbreytilega þingheim og fjölda flokka, að þetta verkefni muni reynast okkur erfitt ef við viljum (Forseti hringir.) reyna að ná fram breytingum í samstöðu, sem ég held að sé vilji langflestra hér inni.



[13:16]
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir (V):

Virðulegi forseti. Enn og aftur: Það er grundvallarágreiningur okkar á milli varðandi þetta auðlindaákvæði. Ég tel það ekki bara glatað, það er stórhættulegt. Ég vil miklu frekar hvetja hæstv. forsætisráðherra og þingmann Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs, Katrínu Jakobsdóttur, til að nýta sína pólitísku inneign til að fá hennar kæru vini í Sjálfstæðisflokknum til að skipta um skoðun, segja við þá: Kæru vinir. Breytum þessu og höfum þetta algerlega ótvírætt, að það þurfi tímabundna samninga til þess að vera með afnot og aðgang að auðlindum þjóðarinnar. Gerum þetta ótvírætt, kæru vinir. En hún vill ekki nýta þessa inneign sína í þetta, gott og vel.

Ég vil undirstrika að ég tel mjög mikilvægt að við fáum tækifæri til að ræða stjórnarskrána hér áfram í þingsal. Ég tel tækifæri til að taka ákveðin skref. Já, það á víst eftir að vinna ákveðna þætti og mér hefði þótt meiri bragur á því ef nefndin hefði verið komin lengra. En ég held engu að síður að það sé enn svigrúm og enn tækifæri einmitt til að taka einhver skref varðandi stjórnarskrána í sæmilegri sátt (Forseti hringir.) og þá er ég að tala um íslenskuákvæðið, umhverfisákvæði og síðan hinn títtnefnda II. kafla stjórnarskrár sem er kenndur við forsetann.



[13:17]
forsætisráðherra (Katrín Jakobsdóttir) (Vg):

Herra forseti. Það stendur ekki á mér í þessu máli og ég hef sagt það margítrekað að ég telji mjög mikilvægt að ná fram einhverjum breytingum á stjórnarskrá og ég tel margar þeirra breytinga sem eru lagðar þarna til þess eðlis að um þær ætti að geta verið samstaða. Auðvitað er dapurlegt að stjórnarskrá Íslands sé t.d. þögul með öllu um umhverfis- og náttúruvernd, ein stjórnarskráa á Norðurlöndum. Ef stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd næði saman um að afgreiða slíkt ákvæði þá myndi ég vera fullkomlega til í þá umræðu sem og þær breytingar sem hv. þingmaður vísar hér til og þær þurfa ekki allar að koma til atkvæða ef fólk metur þær ekki allar skynsamlegar. En þó hefur mér heyrst að það geti verið töluverður samhljómur um ýmsar þær breytingar sem eru lagðar til í forsetakaflanum, ekki allar, gott og vel. Ég hef hvatt framsögumann málsins og formann nefndarinnar til að vinna að því einmitt að kanna það algerlega til botns hvort ekki sé unnt að ná samstöðu um einhver ákvæði þannig að þetta verkefni (Forseti hringir.) hreyfist og þannig að stjórnarskráin verði t.d. ekki þögul áfram um umhverfis- og náttúruvernd sem er eitt stærsta mál samtímans.