152. löggjafarþing — 38. fundur
 21. feb. 2022.
Frestun á skriflegum svörum.
viðurkenning sjúkdómsgreininga yfir landamæri, fsp. AIJ, 237. mál. — Þskj. 337.
kostnaður ríkissjóðs við skimanir vegna COVID-19, fsp. BergÓ, 256. mál. — Þskj. 360.
minnisblöð sóttvarnalæknis og ákvarðanir ráðherra, fsp. BergÓ, 258. mál. — Þskj. 362.
línuívilnanir til fiskiskipa, fsp. LRM, 275. mál. — Þskj. 387.
aflaheimildir, fsp. IngS, 274. mál. — Þskj. 383.
ráðstöfun Fiskistofu á aflaheimildum, fsp. LRM, 265. mál. — Þskj. 372.
loftslagsáhrif botnvörpuveiða, fsp. ÞorbG, 365. mál. — Þskj. 512.

[15:04]
Forseti (Birgir Ármannsson):
Bráðabirgðaútgáfa.

Borist hefur bréf frá félags- og vinnumarkaðsráðherra þar sem óskað er eftir fresti til þess að veita skriflegt svar við fyrirspurn á þskj. 337, um viðurkenningu sjúkdómsgreininga yfir landamæri, frá Andrési Ingi Jónssyni.

Þá hafa borist bréf frá heilbrigðisráðherra þar sem óskað er eftir fresti til að veita skrifleg svör við fyrirspurnum á þskj. 360, um kostnað ríkissjóðs við skimanir vegna Covid-19, og á þskj. 362, um minnisblöð sóttvarnalæknis og ákvarðanir ráðherra, báðar frá Bergþóri Ólasyni.

Einnig hafa borist bréf frá matvælaráðherra þar sem óskað er eftir fresti til að veita skrifleg svör við fyrirspurnum á þskj. 383, um aflaheimildir, frá Ingu Sæland, á þskj. 387, um línuívilnanir, á þskj. 388, um ráðstöfun á aflaheimildum til frístundaveiða, og á þskj. 372, um ráðstöfun Fiskistofu á aflaheimildum, allar frá Lilju Rafneyju Magnúsdóttur.

Að lokum hefur borist bréf frá umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra þar sem óskað er eftir fresti til að veita skriflegt svar við fyrirspurn á þskj. 512, um loftslagsáhrif botnvörpuveiða, frá Þorbjörgu Sigríði Gunnlaugsdóttur.