152. löggjafarþing — 90. fundur
 14. júní 2022.
raforkulög o.fl., 1. umræða.
frv. atvinnuvn., 19. mál (eignarhald flutningsfyrirtækisins). — Þskj. 19.

[15:16]
Frsm. atvinnuvn. (Stefán Vagn Stefánsson) (F):
Bráðabirgðaútgáfa.

Virðulegur forseti. Ég mæli fyrir hönd atvinnuveganefndar fyrir frumvarpi til laga um breytingar á lögum nr. 74/2021, um breytingu á raforkulögum, nr. 65/2003, og lögum um stofnun Landsnets hf., nr. 75/2004, varðandi eignarhald flutningsfyrirtækis.

Frumvarp þetta er lagt fram í því skyni að seinka yfirfærslu á eignarhaldi Landsvirkjunar, Rariks, Orkuveitu Reykjavíkur og Orkubús Vestfjarða í Landsneti til íslenska ríkisins og/eða sveitarfélaga sem áætlað var í lögum nr. 74/2021 að yrði lokið 1. júlí nk. Ljóst er að það tímamark mun ekki nást en verði frumvarpið að lögum gefst tími til að ljúka vinnu við yfirfærslu eignarhalds Landsnets án lagalegrar óvissu. Verði frumvarpið hins vegar ekki að lögum er þess að vænta að fyrir hendi verði lagaleg óvissa, t.d. um heimildir hlutafjárhafa til framsals á hlutafé sem og um lánstraust þeirra ríkisaðila sem nú eiga eignarhluti í Landsneti.

Frumvarpið felur í sér að það skilyrði að Landsnet skuli vera í beinni eigu íslenska ríkisins og/eða sveitarfélaga komi ekki til framkvæmda fyrr en 31. desember nk. í stað 1. júlí. Í því felst einnig brottfall 2. málsl. 2. mgr. 4. gr. laga um stofnun Landsnets og að ákvæði til bráðabirgða XII í raforkulögum frestist með sambærilegum hætti sem eru í beinum tengslum við áform um breytt eignarhald Landsnets.

Virðulegur forseti. Ég hef nú gert grein fyrir helstu efnisatriðum þessa frumvarps og legg til að að lokinni þessari umræðu gangi frumvarpið beint til 2. umr.



Frumvarpið gengur til 2. umr.